Fjall í fangið
Eimreiðarelítan
Útgefnar bækur

Fjall í fangið

Eimreiðarelítan – spillingarsaga
Bókin Eimreiðarelítan – spillingarsaga fylgir frægustu valdaelítu nútímans frá upphafi áforma hennar um yfirráð yfir Íslandi.
Á hátindi pólitískrar sigurgöngu hennar afhjúpaðist mesta fjármálaspilling sem sannast hefur í markaðskerfi í heiminum og kveikti umfangsmeiri fjársvikarannsóknir en áður hafa þekkst í Evrópu.
Hér er kafað djúpt ofan í undirheima opinbers valds á Íslandi og slóð grunsemda um spillingu æðstu ráðenda ríkisins er fylgt um áratugaskeið. Sköpuð er víð og heildstæð mynd af rótgrónum spillingarvanda Íslands. Stóru spurningunum um pólitísk undirferli og svik er loksins svarað.
Bókin er byggð á fjalli af rannsóknarskjölum, B.A. og meistaraprófsritgerðum um spillingu ásamt umfangsmiklum óbirtum trúnaðargögnum innan úr Landsbankanum og fjölda dómsmála.
Sumt vissirðu. Sumt grunaði þig. Hér færðu stóra samhengið.
Bókin er harðspjalda, innbundin, 460 síður.